Hönnun er allt í kring og alls staðar, hún mótar daglegt líf okkar og endurspeglar sögu samfélagsins. Inntak og markmið hönnunar getur verið á marga vegu eins og að miða að því að að gera góða söluvöru eða að koma á samfélagslegum breytingum. Hönnun er tengill á milli lista og iðnaðar, skarast inn á bæði sviðin og varpar ljósi á jafnt pólitíska, tæknilega og menningarlega þróun. Íslensk hönnun er eins konar spegilmynd þess samfélags sem mótaði hana og hún varð til í.
Hönnunarsaga.is er vettvangur fyrir rannsóknir og miðlun á sögu hönnunar á Íslandi.